31. desember 2008
Matur í Austurbrún hjá Magnúsi og Sylvíu, með Friðjóni, Sæunni og fjölskyldu. Hafsteinn, Jóna og börn birtust eftir mat. Frábær matur og svo áramótapartý hjá okkur í Kaldaseli, Magnús & Sylvía, Hafsteinn, Jóna og Bjarni komu úr Austurbrún og svo Agga, Maggi og Kiddi. Alli, Kristín, Anna og Pétur kíktu við og Halli Reynis með tengdamömmu. Frábært kvöld og mjög gaman en greinilega ekki mikil stemming fyrir svona áramótasamkomu.
Nokkrar myndir frá jólum og áramótum hér.
30. desember 2008
Áramót Iðunnar í bridge, góð mæting, 20 manns og við náðum aldrei þessu vant að halda sigrinum inni á heimilinu.
23-27. desember 2008
Hátíðarnar eftir venju, nema hvað Viktor var lasinn á aðfangadagskvöld, Skötuveisla hjá Öggu á Þorláksmessu, kalkúnn hjá okkur á aðgangadag, hangikjöt með minni fjölskyldu og kasti á jóladag hjá Kidda, svínabógur með fjölskyldu Iðunnar í Austurbrún á annan í jólum. Brynja, Kalli, Kristín og Svanhildur kíktu í heimsókn á laugardag.
19. desember 2008
Alli, Maggi og Þórhallur kíktu í spil, Iðunn vann bæði mótin.
18. desember 2008
„Jóla“-tapas, vín, snafsar og fleira hjá Bryndísi, með Gulla og Kristínu. Frábært kvöld, eins og alltaf þegar þessi hópur hittist.
13. desember 2008
Jólahlaðborð hjá Staka, fordrykkur undir stjórn Hafliða heima hjá Jóni og Jóhönnu í glæsilegu nýju húsi. Maturinn í Skútunni í Hafnarfirði óvenju góður af hlaðborði að vera og vínin sérstaklega vel valin, aftur hjá Hafliða. Fórum á gömlu vínstofuna á eftir.
12. desember 2008
Jólamatur hjá Brynju og Kalla, mættum um sjö og vorum að éta til ellefu, ofboðslega vel heppnað kvöld, með ostum, síld, kæfum, rauðsprettu og pörusteik. Brynja, Kristín, Iðunn og Steinunn og svo Alli, Halli, Halli, Kalli og Valli.
11. desember 2008
Í heimsókn hjá Frey á dægurmálaútvarpin Rásar2 að velta upp hugmyndum um kosningalög, sjá nánar kosningalögin.
6. desember 2008
Sálfræðingarnir á BUGL kíktu í sameiginlega máltíð, tókst rosalega vel, myndatakan mistókst, en nokkrar hér.
5. desember 2008
Kíktum aðeins á jólaborð Þjónustumiðstöðvar Breiðholts, eftir matinn, gaman að hitta hópinn aftur.
28. nóvember – 1. desember 2008
Ferð til Manchester með Öggu & Magga, Gunnu & Kidda, Halla & Steinunni og Írisi & Sigga. Jólamarkaðurinn skemmtilegur, góður matur á gríska Tapas staðnum Dimitri’s, frábær á argentínska steikar staðnum Gaucho, og vel yfir meðallegi á ítalska Piccolino. Og til að við næðum nú öllu sviðinu þá duttum við inn á (sennilega) versta veitingastað sem við höfum borðað á, amk. ef götusölum í London er sleppt. Thaílenskur / indverskur og heitir „Vermilion & Cinnabar“ – meðalmennskan í mat og slöpp þjónusta kannski ekki það versta, en dúndrandi hátt teknó allan tímann var ekki alveg það sem við vorum að leita að. Og til að toppa kvöldið fékk Steinunn sennilega matareitrun.
En hópurinn small ofsalega vel saman og eftir að við ákváðum að nota gengið eins og það var í vor, pundið á rúmlega hundrað kall, þá voru engin vandamál. Sinclair’s Oyster Pub við enda einnar göngugötunnar í skemmtilegu gömlu húsi bauð bjórinn á rúmt pund. Ekki spillti að ná 140 pundum í plús í póker í Casino.
Fórum á Manchester City – Manchester United, dapur leikur en stemmingin á pöbbnum hjá City með því skemmtilegra sem við höfum lent í fyrir leik. Kiddi auðvitað heitur City aðdáandi og restin af hópnum hélt með City, nema auðvitað Halli, sem klappaði með tánum þegar United skoraði – og Steinunn gaf ekkert upp.
En jólamarkaðurinn er mjög skemmtilegur, fullt af litlum kofum með heimalöguðu konfekti, „fudge“, handavinnu, peysum, treflum, húfum, ostum frá Hollandi og Belgíu, bjór og pylsum frá Þýskalandi og Spáni, kæfum, jólaglögg, meiri bjór, hvítlaukur, meiri ostar og ég veit ekki hvað…
Hótelið var nánast við miðbæinn, ótrúlega stór og tóm herbergi, en allt sem við þurftum var til staðar. Miðbærinn hefur fengið mikla andlitslyftingu, en sláandi munur á borginni um leið og komið er út fyrir innsta kjarnann, bara 20 mínútna göngufjarlægð (á mínum hraða) var búið að negla fyrir fullt af fyrirtækjum og húsin í niðurníðslu.
En, fyrsti skammtur af myndum hér.
27. nóvember 2008
Héldum upp á þrjátíu ára afmæli Fræbbblanna og enn frekar að fjórði áratugar Fræbbblanna er hafinn. Spiluðum á Grand Rokk, ágætis mæting og virkilega fín stemming. Uppistaðan í dagskránni var efni af næstu plötu og virðist ætla að ganga upp, auðvitað eitt og annað sem þarf að slípa til.
22. nóvember 2008
Sambindis jólamatur hjá Hákoni og Hjördísi, frábær kalkúnn og gott kvöld, spurningaleikur að hætti Tomma.
16. nóvember 2008
Brynja, Tina, Assi og Stína kíktu með og í mat. Alli kom að sækja bílinn..
15. nóvember 2008
Alli, Kalli, Maggi og Þórhallur kíktu í spil.
9. nóvember 2008
Tók að mér að vera athafnastjóri við nafngjöf Öglu Margrétar, dóttur Brynju og Kalla. Vann þetta í samráði við Siðmennt þó athöfnin væri ekki á þeirra vegum. Mjög gaman taka þátt og ánægður að fá að vera með.
8. nóvember 2008
Madridarkvöld, hópurinn sem fór til Madrid í fyrra hittist hjá Hirti og Þóru, skemmtilegt kvöld með tapas og vínkynningu frá Berinu.
6. nóvember 2008
Sambindið kom í heimsókn, Orri skrópaði, en annars mæting.
5. nóvember 2008
Sameiginlegt barnaafmæli á afmælisdegi mömmu, veisla að hætti Öggu.
1. nóvember 2008
Í mat hjá Halla Reynis og Steinunni, alltaf gaman að hitta þau. Afmælispartýið hans Viktors beið okkur svo þegar við komum heim, stútfullt af skemmtilegum krökkum. Iðunn var ein af krökkunum, en ég fór fljótlega að sofa.
31. október 2008
Í mat hjá Helga og Þóru, stungum af til að sjá Viktor keppa í Morfís fyrir hönd Kvennó undir þjálfun Jonna. Unnu öruggan sigur. Aftur til Helga og Þóru eftir keppnin og sátum að hóflegu sumbli.
25. október 2008
Assi, Stína og Alli komu í mat.
18. október 2008
Árshátíð Vantrúar, mættum reyndar ekki fyrr en eftir mat, en gaman að hitta þá sem við höfum verið að fylgjast með á vefnum.
17. október 2008
Staki flutti upp á Klettháls, stutt að fara, bjart og fínt húsnæði, en mætti vera meira hús næði.
9.-11. október 2008
Árleg Sambindisferð í sumarbústað. Fín ferð og þó við Orri færum tveir á föstudagskvöldinu vorum við í góðum gír með grill, gæðavín og góða tónlist.
3. október 2008
Vísindadagur hjá Iðunni, lauk með móttöku í Skólabæ, fínt kvöld og enduðum á Vínbarnum.
12.-16. september 2008
IBC sýningin í Amsterdam. Alltaf gaman í Amsterdam og sýningin orðin ómissandi. Verst hvað allt verð er hrikalega hátt í borginni þessa helgi, bjórinn á þúsund kall á EuroPub, ég fékk smá kústaskáp (8 fermetra) á 950 Evrur fyrir fjórar nætur. Enda stendur til að færa sýninguna til Frakklands, eftir því sem leigubílstjórarnir sögðu. En EuroPub er „skrifstofa“ norðurlanda þjóðanna og gaman að hitta fólk utan dagskrár.
Annars óvenju svalt og meira að segja íslensk rigning á köflum og þar fyrir utan einhver slappleiki og aumingjagangur að drepa mig..
Veitingastaðirnir Vasso og Van De Kaart stóðu heldur betur undir væntingum, og Savini bættist á nauðsynlegt-að-heimsækja listann. Fann nokkra bjórstaði rétt hjá sem voru með mikið úrval af bjór á viðráðanlegu verði, In De Wildeman, Cafe Belgique og Amsterdam Stoombierbrouwerij, en komst aldrei á Whisky barina, segir kannski meira um hvað heilsan var döpur.
Datt reyndar síðasta kvöldið inn á Holland Casino og kom 20 þúsund kalli ríkari út þrátt fyrir lítinn upphafssjóð. Skemmtilega stemming að detta öðru hverju inn í Casino (er ekki til skárra íslenskt orð en „spilavíti“?) en er samt einhvern veginn ekki nógu spenntur til að gerast spilafíkill..
4.-8. september 2008
GoutOnVa ferð til Luxemborgar, þeas. við Iðunn fórum með Assa og Stínu og Auði og Steina í heimsókn til Krissa og Rúnu (og reyndar Salóme) í Luxemborg. Ferðin gekk eingöngu út á að éta og drekka og vera glöð eins og þar segir, og tókst alveg stórkostlega vel. Fullt af myndum hér
Keyrðum frá Frankfurt til Luxemborgar og gistum hjá Krissa og Rúnu í nýja húsinu, nóg pláss og nóg af öllu. Fyrsta kvöldmáltíðin var á stað sem heitir „Síðasta kvöldmáltíðin“ og svo farið í Tívolí.
Trier var næst á dagskrá, bjór, vínsmökkun, matur og heim í skýfall. Fórum á japanskan stað um kvöldið sem toppar sennilega alla japanska staði sem við höfum farið á, nema kannski staðinn sem var á Krasnapolski í Amsterdam. Næst á hljómleika með kanadísku punk hljómsveitinni The Mahones (sem ríma visvitandi við Ramones, og taka sennilega seinni hlutann af Pogue Mahone þar sem Pogues gripu fyrri hlutann) í tjaldi í næsta skýfalli á írskum pöbb, „The Black Stuff“, þrælskemmtilega hljómsveit og koma kannski heim á næsta ári. Salóme plataði okkur svo í SingStar þegar heim var komið, ótrúlegt hvað mikil bjórdrykkja brýtur niður mótstöðuaflið.
Á laugardeginum var verslað inn fyrir matseld næstu tveggja daga, farið í vínsmökkun til Jesús sem flytur inn spönsk vín og nautakjöt í whisky sósu plús eldað.. Sunnudagurinn fór í leit að kampavínssmökkun sem fannst ekki, útimarkað, Petang mótið fram eftir kvöldi meðfram eldamennsku, andarbringur í þetta skipti. Náðum ekki að útkljá Evrópumótið í Petang, en útkljáðum held ég endanlega að það standast engir kokkar okkur snúning.
29.-31. ágúst 2008
Einifells ferð til Auðar og Steini, og reyndar kaffi og rabbabaraköku hjá Assa og Stínu, frábær helgi eins og alltaf, fiskisúpa á föstudagskvöldinu, grill. pottur, berjaferð, stjörnuskoðun og Petang á laugardeginum.
23. ágúst 2008
Menningarnótt og hljómleikar í portinu á bak við „Við Tjörnina“, sennilega fjölmennasta kvöldið og skemmtileg stemming, eins og alltaf, fundum minna fyrir að Miklatún væri að taka allt til sín en í fyrra. Mér finnst ekkert að því hjá Rás2 að halda svona stórhljómleika, en þeir eiga ekki erindi á menningarnótt. Þeir taka tennurnar úr kvöldinu og því sem gerði menningarnóttina einstaka, fullt af litlum uppákomum út um allan bæ. Svona hálfpartinn eins og flóðhestur í barnalaug. Það er nóg af kvöldum á árinu og engin ástæða til að valta yfir menningarnóttina.
9. ágúst 2008
Síðbúið afmæli hjá Kiddi og Magga sem voru að meðaltali sextugir, svona nokkurs konar fiskidagur fyrst við komumst ekki norður, myndir frá Kidda hér.
9. ágúst 2008
Mættum á Gay Pride 2008, amk. fjölmennasta og flottasta sem við höfum séð, nokkrar myndir af handahófi hér.
3. ágúst 2008
Mauro-en-samt-ekki-Mauro partý í Kaldaseli, þokkaleg mæting þrátt fyrir verslunarmannahelgi og sunnudagskvöld, og umfram allt, frábært kvöld, nokkrar myndir hér.
3. ágúst 2008
Spiluðum hluta af Punk hátíðarefninu á Árbæjarsafni, gekk nokkuð vel þrátt fyrir aðstæður, ákváðum að flýja rigninguna og færa okkur upp á aðra hæð á síðustu stundu..
26. júlí 2008
Grill með Iðunnarfjölskyldu hjá Sæunni, nokkrar myndir hér.
25. júlí 2008
GoutOnVa á Einifelli á föstudagskvöldi, þriggja liða heimsmeistaramót í Petang, sem Assi, Krissi og Valli unnu. Frábær humar og ekki síðra lambalæri að ógleymdum fljótandi veitingum. Örfáar myndir hér.
3. júlí – 10. júlí 2008
Fórum í vikuferð til Benalmadena á Spáni að eyða nokkrum dögum með Sylvíu og Magnúsi, fengum gott tilboð á flugi og mættum fyrirvaralaust. Nokkrar myndir hér, sumar reyndar frá Sylvíu áður en við komum.
29. apríl – 18. maí 2008
Silfurbrúðkaupsafmælisferðin okkar, London, Aþena, 12 daga sigling, Aþena og London. Stutt ferðasaga hér og slatti af myndum hér.
12-18. apríl 2008
NAB ráðstefnan í Las Vegas með Jóni Eyfjörð og Þorkeli Lillie, fullkomlega galið umhverfi, eftirmynd af París og önnur af New York, eitt stórt ljósaskilti, minnti helst á kvikmyndaver, framhliðin í yfirstærð en ekki svo mikið á bak við. Hótelið sennilega kílómetri að innan, við fengum kort af hótelinu, ekki bænum og þegar Þorkell bað um kort af bænum settu þeir upp svip, „Hvers vegna? Til hvers þarftu að fara út af hótelinu?“. Stútfullt af spilakössum, á næsta hóteli voru 3.000 spilavélar, fyrir utan borðin, og fólk spilandi allan tímann, með kortið í vélinni og snúru frá því í vasann. Ég fékk stærra herbergi en við höfðum pantað, risasjónvarp (sem ég nennti reyndar ekki að horfa á) nuddpottur á baðinu og annað sjónvarp þar. Sýningin sjálf var fín, en allt of stíf dagskrá hjá okkur.
Gistum eina nótt í New York á heimleiðinni, þurftum reyndar að millilenda í Allentown til að taka bensín eftir að hafa hringsólað yfir New York. En, var mjög heillaður af New York, þótt allir (alvöru) matsölustaðir hafi lokað á okkur um kvöldið. Nokkrar myndir hér.
16. mars 2008
Tvær „fermingar“ veislur, Steinar sonur Halla og Steinunnar og Ægir Máni, sem hélt reyndar bara upp á 14 ára afmæli í stað þess að lát ferma sig – flott hjá honum.
8. mars 2008
Héldum Punk hátíð á Grand Rokk með gömlum félögum úr hinum og þessum hljómsveitum, einhverjar myndir hér. Ógleymanlegt kvöld, 40 lög frá 1977-1979, gekk ótrúlega vel, fullt hús og frábær stemming. Verður vonandi árlegur viðburður.
Kvöldið endaði samt á leiðinlegum nótum fyrir Árna Daníel, einhver skríll réðst á hann á heimleið, barði hann og rændi.
4. mars 2008
Horfði á „Óðal feðranna“ með Hrafni og nokkrum þeirra sem tóku þátt í gerð myndarinnar. Myndin eldist ótrúlega vel. Stefnt að því að gefa út á DVD, upprifjfun á myndinni tekin upp og fylgir með sem ítarefni. Kíktum til Hrafns á eftir.
24. febrúar 2008
Mamma dó í nótt, frekar óvænt eftir að hafa verið til þess að gera hraust síðustu mánuði. Varð níræði í haust og eftir að hafa staðið ótrúlega af sér mjög erfið veikindi 2005 og 2006 kom þetta nánast algjörlega flatt upp á okkur.
17.-21. febrúar 2008
Námskeið / kynning / þjálfun hjá RTSoftware í London. Gott hótel við Thames, alltaf gaman í London og ekki spillti að hafa Sævar frá Stöð2 með í för. Kíktum á Steve Earle í Roundhouse, byrjaði ekki illa, en fór hratt niður á við, illa farið með pening að kaupa miðana á svörtum.
Tímdum svo ekki að borga 280 pund á Arsenal-AC Milan, en mælum með ítalska Passione og japanska Roka á Charlotte Street, rétt hjá Tottenham Court Road. Og ekki gleyma ítalska Capitan Corelli í Battersea, óhrjálegur ítalskur staður, en maturinn frábær og nánast borgað með honum.
15. febrúar 2008
Kveðjupartý Iðunnar fyrir vinnuna, eins og alltaf gaman að skemmta sér með þessum hóp, þó ég hafi óvart sofnað full snemma eða um þrjúleytið.
9. febrúar 2008
Sambindið hittist hjá Höskuldi, sem hafði veg og vanda af eldamennsku og undirbúningi, sérstaklega vel heppnað kvöld.
8. febrúar 2008
Iðunn bauð mér á Humarhúsið í tilefni 49 ára afmælisins. Frábær matur og toppþjónusta, ótrúlegt hvað þeir ná að halda háum standard eftir allan þennan tíma. Kíktum á Kristínu og Halla á eftir.
2. febrúar 2008
Árshátíð hjá Iðunni í Gullhömrum, frábær matur og skemmtilegt fólk náði að vinna vel á móti skelfilegu stefi.